4.9.2010
Kvennaþing
Kvennaþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar fer fram á Húsavík helgina 17 - 19 September n.k. Þær sem ætla með verða að skrá sig hjá Svönu og borga staðfestingargjald fyrir Þriðjudaginn 7 September.
Staðfestingargjaldið er 8000kr. og reikningur Kvennasveitarinnar er 1109 - 26 - 5371
Markmið Kvennaþings er að gera félögum sveitanna og deildanna tækifæri til að koma
saman og kynnst hver annarri og ekki síður að kynnast misnunandi starfi
hinna mörgu félaga vítt og breytt um landið
Á dagskrá Kvennaþingsinns er meðal annars leiðtoganámskeið, námskeið í áfallahjálp og skemmtilegar vinnusmiðjur.
Þemað í ár er rautt.
Stjórnin
4.9.2010
Ljósanótt
Þá er Ljósanóttin skollin á og henni fylgir jafnframt ein af okkar stærri fjáröflunarvekefnum sem er að sjá um mat fyrir þá sem eru með öryggisgæslu á hátíðinni. Þær sem vilja leggja eitthvað af mörkum eru beðnar að hafa samband við Kristbjörgu í símann okkar 8402512 til að fá upplýsingar um hvar vantar mannskap.
Stjórnin
30.8.2010
Félagsfundur 2 September.
Þá er komið að næsta félagsfundi sem verður haldinn 2 Sept. í húsi Björgunarsveitarinnar, að venju, og hefst klukkan 20:00. Hann snýst að mestu um verkefnin okkar á Ljósanótt. Því er mikilvægt að sem flestar mæti svo hægt sé að raða verkefnum niður á sem bestan máta og þannig að verkin lendi ekki bara á fárra höndum.
Með von um að sjá sem flestar
Stjórnin.
26.8.2010
Talning fellur niður.
Fjáröflun !!!
Minnum á talninguna í Hagkaup á eftir :)
Því miður var svo lítil þáttaka í talningunni í Bónus að við verðum ekki með þar.
Kveðja stjórnin.
23.8.2010
Fjáröflun.
Næstu verkefni Kvennasveitarinnar.
Þá er komið að hinni árlegu Ágúst talningu hjá Hagkaup og Bónus.
Mæting i Hagkaup uppúr kl 1800 Fimmtudaginn 26 Ágúst, sami tími er á mætingu í Bónus Laugardaginn 28 Ágúst.
Það sem við fáum fyrir þessi verkefni rennur í fræðslu og skemmtisjóðinn okkar.
Hlökkum til að sjá sem flestar svo sjóðurinn okkar eflist og dafni með okkar framlagi :)
Kveðja stjórnin.
17.8.2010
Og nú byrjum við aftur eftir sumarfrí
Sælar allarsaman :)
Þá er nýtt starfsár að hefjast eftir sumarfrí og byrjum við á að hittast Fimmtudagskvöldið 19 Ágúst og nú er mæting kl 1900 því að við ætlum að borða saman áður en hefðbundinn félagsfundur hefst kl 2000.
Anna Ragna og hjálparhellur hennar ætla að elda fyrir okkur og á að bjóða uppá grillaðar kjúklingabringur og lambalærisneiðar með gómsætu meðlæti og kostar þetta 1000 kr á mann.
Hlökkum til að sjá ykkur allar eftir gott sumarfrí endurnærðar og fullar orku að takast á við ný og gömul verkefni Kvennasveitarinnar :)
Stjórnin.
14.7.2010
Kvennaþing í September
Kvennaþing SL verður haldið á Húsavík 17 - 19 September 2010 á Húsavík. . Síðasta Kvennaþing var haldið í Vestmannaeyjum í September 2008 og tókst mjög vel, bæði með dagskrá þingsins ásamt skemmtun og mæting var betri en nokkurn tíma fyrr.
En nú styttist í næsta þing og hvetjum við alla félaga í Kvennasveitinni að skrá sig strax þar sem skráningu er að að ljúka núna 15 Júlí. Nú þegar hafa verið pöntuð herbergi fyrir 20 konur á okkar vegum en það er bæði á hóteli og síðan í gistiheimili á staðnum.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Svönu í síma 8402512
Á dagskrá næsta Kvennaþings er m.a. leiðtoganámskeið, námskeið í áfallahjálp og
skemmtilegar vinnusmiðjur.
Og ekki má gleyma að þemað í ár er rautt:)
6.7.2010
Sumarhátíð SL
Þessi auglýsing hér að neðan er af vefsíðu Slysavarnafélagsinns Landsbjargar þar sem öllum félagsmönnum SL er boðið að taka þátt.í sumarhátíðinni.
Það eru nokkrar úr Kvennasveitinni þegar búnar að ákveða að fara og vilja hvetja aðrar úr sveitinnni að skella sér með ásamt fjölskyldunni. Þetta er gott tækifæri fyrir okkur til að kynna öðrum í fjölskyldunni það starf sem SL stendur fyrir um leið og við njótum þess að vera saman sem fjölskylda og félagar í SL.
Þeir sem hafa áhuga á að fara geta skráð sig hjá Sollu í síma 6632250 eða á netfangið solla@simnet.is
Sumarhátíð Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður haldin helgina 13.- 15. ágúst við félagsheimilið Brautartungu í Lundareykjardal.
Að þessu sinni munu Ársælsmenn sjá um hátíðina. Á hátíðinni verða leikir fyrir alla fjölskylduna; ratleikur, sjógallasund, kvöldvaka og varðeldur.
Við félagsheimilið eru næg tjaldstæði auk hreinlætis- og eldunaraðstöðu og að auki er heit sundlaug á staðnum.
Hver sveit sér um að taka niður skráningu sinna félaga og þarf sá listi að vera tilbúinn 26. júlí.
Í framhaldinu mun skipulagsnefndin e.t.v. kalla á aðstoð við skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar frá einhverju einingum.
Hvetjum alla til að mæta með góða skapið.
Auglýst er eftir sjálfboðaliðum sem spila á gítar.
25.6.2010
Gönguferð
Síðasta gönguferð var sérstök en þá tóku 4 kvennasveitakonur þátt í Kvennahlaupinu :)
En nú er komið að næstu gönguferð og er hún Laugardaginn 26 Júní og eins
og fyrr verður tekin ákvörðun um hvert á að fara þegar hópurinn hittist
og spjallar saman um hvaða leiðir eru skemmtilegar að fara :)
ATHUGIÐ að við
höfum breytt tímanum á göngunni og förum við af stað klukkan
10:00 frá BJSH
Komum
sem flestar
kátar og hressar :)
Anna Ragna
18.6.2010
Sjósetning nýja björgunarbátsins.
Stór áfangi í sögu Björgunarsveitarinnar Suðurnes er nú að nálgast þegar nýji björgunarbáturinn þeirra verður sjósettur og gefið nafn en það
verður gert á Sunnudaginn 20 Júní n.k. í Grófinni kl 16:00
í tilefni þess ætlar Björgunarsveitin að bjóða til fagnaðar og býður m.a. öllum Kvennasveitarkonum að vera viðstaddar og óskar eftir að sem flestar geti séð sér fært að mæta.
Kveðja Stjórnin.
13.6.2010
Næsta hlaupa/skokka/ganga/ ferð :)
Laugardaginn 19 Júní n.k. ætlum við ekki að fara í gönguferð skipulagða af okkur heldur taka þátt í Kvennahlaupinu sem fram fer þann dag. Yfirskriftin í ár er konur eru konum bestar og þar sem það er eitt af uppáhaldsstaðreyndum okkar er enn meiri ástæða til að vera með :) Forskráning í hlaupið er á Miðvikudag og Föstudag kl.17:30 í Sundmiðstöðinni. Það kostar
1250kr. og innifalið í því er mjög flottur bolur sem í ár er appelsínugulur
Hlaupið frá
Sundmiðstöðinni á Laugardag KL.11 og FRÍTT í sund á eftir:-)
Vegalengdirnar eru 2 km -
3,5 km - 7km. Það má labba/skokka/hlaupa :-)
HLAKKA til að sjá sem flestar í Kvennahlaupinu á laugardaginn:-)
Með hlaupa/skokka/labba kveðju,
Anna Ragna
11.6.2010
Gönguferð
Þá er komið að næstu gönguferð og er hún Laugardaginn 12 Júní og eins
og fyrr verður tekin ákvörðun um hvert á að fara þegar hópurinn hittist
og spjallar saman um hvaða leiðir eru skemmtilegar :)
ATHUGIÐ að við höfum breytt tímanum á göngunni og förum við af stað klukkan
10:00 frá BJSH
Komum
sem flestar
kátar og hressar :)
Anna Ragna
9.6.2010
öryggiskerfi
Fimmtudagskvöldið 10 Júní kl 20:00 verður kynning á nýju öryggiskerfi í Björgunarsveitarhúsinu. Allar félagskonur eru hvattar til að koma og sjá hvernig það virkar.
Björgunarsveitin og Unglingasveitin eru líka boðaðar
Síðan á að hjálpast að við taka til utandyra, bæði laga til og endurskipuleggja og að bera á allt tréverk. Eins á að fara í tiltekt og skipulagningu innandyra. Allir sem geta lagt þessu lið eru hvattir til að mæta.
31.5.2010
Sala á Sjómannadagsmerkinu
Þá er komið að næstu fjáröflun hjá okkur sem felst í sölu á merki Sjómannadagsinns.
Fyrstu slysavarnadeildirnar voru einmitt stofnaðar vegna sjómanna og þeirra tíðu slysa sem urðu á sjónum. Konur gátu ekki setið aðgerðalausar hjá og beðið og því fóru þær af stað og vegna þeirra verka voru ljósvitum um landið fjölgað, þær öfluðu fjár fyrir slysavarnaskýlum sem voru sett upp víða við strendur landsins og eins hvöttu þær til þess að björgunarbúnaður væri um borð í bátum og á bryggjum landsins.
Búið er að hanna nýja gerð af Sjómannadgsmerkinu og í dag er ekki þetta gamla bréfmerkið með fánanum heldur næla í rauðum, bláum og hvítum lit og verður söfnunargripur eins og Neyðarkall björgunarsveitanna. Þetta merki verður selt til styrktar slysavörnum sjómanna sem alltaf þarf að vera að huga að og finna betri og öruggari leiðir.
Við ætlum að vera að selja á Fimmtudag og Föstudag frá hádegi og frameftir, bæði hér suðurfrá og eins í bænum, því er mikilvægt að sem flestar taki þátt svo við getum mannað þessa staði og eins og alltaf er hver klukkustund sem lögð er af mörkum í þessa sölu mikilvæg.
Þær sem ekki eru búnar að skrá sig geta haft samband við Önnu Rögnu í síma 8611129
28.5.2010
Gönguferð
Þá er komið að næstu gönguferð og er hún Laugardaginn 29 Maí, og eins og fyrr verður tekin ákvörðun um hvert á að fara þegar hópurinn hittist og spjallar saman um hvaða leiðir eru skemmtilegar :)
ATHUGIÐ að um breyttann tíma er að ræða í staðinn fyrir að leggja af stað klukkan 11:00 frá BJSH þá verður lagt af stað klukkan 10:00
Komum sem flestar
kátar og hressar :)
Anna Ragna
26.5.2010
Félagsfundur
Næsti félagsfundur er Fimmtudaginn 27 Maí kl 20:00 í húsi BJS.
á dagskrá fundarins er m.a.sala á slysavarnamerki sjómanna, kvennaþingið á Húsavík og.fl
Sjáumst sem flestar
Kær kveðja
stjórnin
21.5.2010
gönguferð
Sælar stelpur :)
Þá er komið að næstu gönguferð hjá okkur en hún er á Laugardaginn 22 maí og leggjum við af stað frá Bjs húsinu kl 11.
Hlakka til að hitta ykkur sem flestar
Anna Ragna
13.5.2010
Vorferð að Gufuskálum
Þá er komið að vorferðinni okkar að Gufuskálum en það er mæting við Björgunarsveitarhúsið á milli kl 17:00 og 18:00 Föstudaginn 14 Maí. Verðið er 2000kr og þarf að borga áður enn lagt er af stað. Allt innifalið nema að við þurfum að sjá okkur fyrir morgunmat báða daganna og síðan ef við viljum hafa snakk, osta eða hvað annað svona "nammi" sem við viljum gæða okkur á ásamt drykkjarföngum fyrir utan kaffi. Eins þurfum við að hafa með sængurföt, handklæði, sundföt og útiföt fyrir göngu sem farið verður í á Laugardagsmorguninn og hellaskoðun sem okkur er boðið í eftir hádegi. Áætlað er að leggja af stað heimleiðis kl 13:00 á Sunnudeginum.
Nánari upplýsingar hjá Önnu Rögnu í síma 8611129 og Ragnheiði í síma 8475286
10.5.2010
Peysudagur
Nú mætum við öll í rauðu peysunum okkar í vinnu og skóla á morgun,
þriðjudaginn 11. maí.
Hilmar Snorrason, skólastjóri
Slysavarnaskóla sjómanna fékk þá hugmynd, að halda árlegan "Peysudag"
félagsins og var hún framkvæmd í fyrsta skipti á síðasta ári. Ætlunin er
sú að þann dag á hverju ári skrýðist félagsfólk merktum fatnaði (t.d.
rauðu flíspeysunum) við sín daglegu störf. Þannig má gera félagið og
meðlimi þess sýnilega víða um þjóðfélagið. 11. maí þykir heppilegur
"Peysudagur" þar sem hann hefur sterka skírskotun í sögu félagsins en
hann var áður svokallaður lokadagur.
Þetta er tekið af heimasíðu Landsbjargar og hvetjum við allar Kvennasveitarkonur til að taka þátt í peysudeginum á morgun og vera í peysunum þegar við erum að snúast. Eins getum við verið í rauðu bolunum með merkinu okkar á ef við höfum tækifæri á.
Eins minnum við á kökusölu Hraunprýðiskvenna sem er í Hafnarfirði á morgun.Við ætlum að fara um kl.17:00 og þeir sem vilja koma með geta haft samband við Kristbjörgu í síma 6648851 eða Svönu í síma 8402512.
1.5.2010
Gönguferð 1Maí
Gönguhópurinn okkar hefur skipulagt aðra gönguferð sína og er mæting kl 11:00 í húsi björgunarsveitarinnar, en þar verður ákveðið hvert á að fara. Áætlað er að gangan verði í um klukkutíma og miðuð við að allir sem koma geti verið með og hafi gaman af ferðinni :)
1.5.2010
Aðalfundi lokið.
Þá er aðalfundi lokið og ný stjórn hefur tekið við sem er sú sama og áður nema að Anna Ragna Siggeirsdóttir var kosin varamaður í stjórn í staðinn fyrir Unni Perlu.
Ýmsar lagabreytingar voru samþykktar ásamt hækkun á árgjaldi.
Góð mæting var og í kaffhlé voru framreiddar glæsilegar veitingar að vanda og sáu nokkrar af félagskonunum um þær.
25.4.2010
Aðalfundur
AÐALFUNDUR.
6. Aðalfundur Kvennasveitarinnar Dagbjargar verður haldinn fimmtudaginn 29 apríl kl 20:00 í húsi björgunarsveitarinnar að Holtsgötu 51 Njarðvík.
Dagskrá aðalfundar
1 Formaður setur fund, skipar fundarstjóra og fundrritara.
2 Skýrsla stjórnar.
3 Reikningar skýrðir og lagðir fram til samþykktar.
4 Lagabreytinar.
5 Kosning stjórnar.
6 Ákvörðun árgjalds.
7 Önnur mál.
Fyrir hönd Kvennasveitarinnar Dagbjargar.
Stjórnin.
15.4.2010
Uppstillingarnefnd
Þá er að styttast í Aðalfund Kvennasveitarinnar en hann verður haldinn 29 Apríl n.k.
Kristín Davíðsdóttir og Guðbjörg Jónsdóttir hafa tekið að sér að vera í uppstillingarnefnd þannig að þær sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til stjórnar hafi samband við þær.
Kristín er í síma 8943166 og Guðbjörg í síma 6941058
14.4.2010
Súpufundur
Næsti félagsfundur er Súpufundur sem er haldinn á afmælisdegi Kvennasveitarinnar 16 Apríl í Kaffitár við Stapabraut 7. og byrjar fundurinn klukkan 19:00. Boðið er upp á súpu og brauð ásamt kaffi á 1000kr en einnig getum við keypt aðra drykki og kökur sem boðið er upp á í versluninni.
Á fundinum er venjuleg fundardagská en einnig fáum við gest frá Kvennadeildinni Þórkötlu í Grindavík til spjalls og ráðgerða og til að kynna starfsemi þeirra.
Konur eru hvattar til að skrá sig sem fyrst hjá Kristbjörgu í síma 6648851
29.3.2010
Árshátíð :)
Sameiginleg árshátíð Bj Suðurnes og Kvennasveitarinnar Dagbjargar
verður haldinn laugardaginn 10. apríl í Top of the rock
Húsið opnar kl 19:30 með fordrykk og borðhald hefst kl 20:30
Miðaverð er 2500 kr á mann (líka makar)
Skráning er hjá Önnu Rögnu í síma 8611129
fyrir 6. apríl
Og muna stelpur að okkar þemi er grænn :o)
Árshátíðarnefnd
23.3.2010
Námskeið hjá Rauðakrossinum
Fimmtudaginn 25 Mars verður Rauði Krossinn með námskeið fyrir okkur um áfallahjálp í húsnæði þeirra að Smiðjuvöllum 8 kl 18:00-22:00
Ef þið viljið vita meira þá er bara að hringja í Svönu í síma 8402512 :)
19.3.2010
Öryggisheimsóknir 20 Mars
Þær sem ætla að vera með í heimsóknum til aldraðra Laugardaginn 20 Mars eiga að mæta niður í björgunarsveitarhús kl 10:00. Þar sem við ætlum að borða saman morgunmat og samráðgast um hvernig best er að haga þessu verkefni sem við erum að fara í. Förum af stað um 11:00 og vonumst til að vera um tvo tíma að ljúka þessu.
Slysavarnahópurinn
Mesta hamingjan felst í því að gera lykkju á leið sína til þess að gera eitthvað gott - þótt alls óvíst sé hvort nokkur muni að því komast.
(Tekið af síðunni konur eru konum bestar)
17.3.2010
Öryggisheimsókn til aldraðra
Laugardaginn 20 Mars verður farið í öryggisheimsóknir til aldraðra í Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar síðar.
16.3.2010
Bingó
því miður fellur bingókvöldið niður sem átti að vera Fimmtudagskvöldið 18 mars
Kveðja
fjáröflunanefnd
8.3.2010
Prjónakvöld
Minni á skemmtilegu prjónakvöldin í vikunni :)
Prjónakvöldið í Kaffitár er Þriðjudaginn 9 Mars kl 20:00, og svo er prjónakaffið í
Virkjun á Fimmtudaginn 11 Mars. kl 20:00.
Skemmtilegar kvöldstundir fyrir
þær sem hafa gaman af að prjóna og spjalla saman um dægurrmál og
lífsins gátur.
1.3.2010
Félagsfundur
Næsti félagsfundur er Fimmtudagskvöldið 4 mars kl 20:00 í húsi Björgunarsveitarinnar Suðurnes.
23.2.2010
Fundur hjá fjáröflunarnefnd
Miðvikudaginn 24 Febrúar verður fundur hjá fjáröflunarnefndinni heima hjá Ragnheiði Ragnarsd. að Svölutjörn 16 Innri-Njarðvík kl. 20:00.
Allar þær sem áhuga á að koma og vera með þó þær séu ekki í nefndinni er velkomið að koma og vera með.
Fjáröflunarnefndin.
23.2.2010
Talning
Þá er að styttast í næstu fjáröflun hjá okkur og er það talning í Hagkaup og Bónus.
Talningin í Hagkaup er Fimmtudaginn 25 Febrúar mæting kl 18:15 og svo
er talningin í Bónus á Laugardaginn 27 Febrúar og mæting þar er 18:30.
Það voru nógu margar búnar að skrá sig í talninguna hjá Hagkaup en okkur vantar fleiri þáttakendur á laugardaginn. Verum duglegar að taka þátt þar sem þetta eru fjáraflanir sem fara í
fræðslu og skemmtisjóðinn okkar :)
Kveðja Stjórnin.
22.2.2010
ATH...ATH...ATH
Farið verður kl 15:30 í dag en ekki 16:30 eins og stóð í fyrri tilkynningu
munið að mæta tímanlega
19.2.2010
Heimsókn í Landsbjörg
Mánudaginn 22 febrúar verður farið í heimsókn í Landsbjörg.
Farið verður frá björgunarsveitarhúsinu kl 16:30.
Áætluð mæting í Landsbjörg er 17:30.
Munið að mæta tímanlega.
11.2.2010
112 dagurinn
11. febrúar er 112 dagurinn og í ár verður sjónunum sérstaklega beint að, aðkomu hins almenna borgara að vettvangi slysa, veikinda og annarra áfalla. Áhersla verður lögð á þekkingu í skyndihjálp og sálrænum stuðningi, samskipti við 112, forvarnir og slysavarnir. Viðbragðsaðilar koma sjaldnast fyrstir á vettvang slíkra atburða. Oftast hefur venjulegur borgari komið að, tilkynnt um atburðinn og veitt fyrstu aðstoð. Þessi fyrstu viðbrögð geta skipt miklu um afdrif fólks og hvernig til tekst með björgun. Mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir að það getur hvenær sem er orðið þátttakendur í slíkum atburðum. Við hvetjum fólk því til þess að búa sig undir það meðal annars með því að öðlast þekkingu í skyndihjálp, þekkja neyðarnúmerið og hvernig haga ber samskiptum við það. Þemað er jafnframt kjörið tækifæri til að vekja athygli á mikilvægi sálræns stuðnings, forvarna og slysavarna.
(Tekið af vef Slysavarnafélagsinns Landsbjargar )
8.2.2010
Prjónakaffi í Kaffitár
Þá er komið að næsta prjónakvöldi í veitingastað Kaffitárs við Stapabraut fyrir allar þær sem gaman hafa af að koma saman og prjóna og skrafa saman um landsins gagn og nausynjar ásamt öllu öðru sem gaman er að spjalla um :)
Hittumst hressar Þriðjudagskvöldið 9 Febrúar n.k. kl 20:00
2.2.2010
Skemmtifundur
Þá fer að styttast í næsta félagsfund hjá okkur og verður hann Fimmtudagskvöldið 4 Febrúar kl 20:00 í húsi Björgunarsveitarinnar.
þar sem þetta á að vera skemmtifundur er Skemmtinefnd búin að undirbúa nokkur skemmtiatriði fyrir okkur svo við getum byrjað að hlakka til:)
Þær sem eiga eftir að borga wc pappírinn eru beðnar að mæta fyrr eða 19:30 til að gera upp söluna.
Með von um að sjá sem flestar
Stjórnin.
2.2.2010
Haiti farar með myndakvöld
Í kvöld 2 Febrúar ætla Haraldur og Halldór ( Halli og Dóri ) sem fóru með Alþjóðasveitinni í björgunarleiðangurinn til Haiti að vera í húsi Björgunarsveitarinnar kl. 20:00 og segja frá ferðinni í málum og myndum og er öllum Kvennasveitarkonum boðið að koma og vera með og heyra um gang ferðarinnar.
28.1.2010
fjáröflun gengur vel
Að venju gekk síðasta fáröflun vonum framar og náðum við settu marki og rúmlega það :) Þar sem Björgunarsveitin og Unglingasveitin náði ekki að vera með var ákveðið að halda áfram með sölu og setja annann afhendingardag eftir u.þ.b eina viku svo þeir geti verið með og þið getið þá líka haldið áfram að taka pantanir, sama magn og sama verð og áður.
Kveðja Fjáröflunarnefnd
24.1.2010
Fjáröflun
Söfnun til styrktar Björgunarsveitinni Suðurnes
Á síðasta fundi sínum ákvað Kvennasveitin að fara af stað með fjáröflun
sem felst í að selja wc pappír og handþurrkur frá Papco. Allir
félagsmenn eru hvattir til að vera með og selja lágmark 3 pakkningar
hver.
Síðan bætti fjáröflunarnefndin um betur og bauð Björgunarsveitinni
Suðurnes og Unglingasveitinni Kletti að vera með og myndi afraksturinn
renna í sjóðinn sem var stofnaður til kaupa á nýjum björgunarbát fyrir
sveitina.
Pöntun líkur núna í dag og eru þeir sem ekki hefur náðst í hvattir til
að hafa samband við Sólbjörgu ( Solla sími 6632250 ) og gefa henni upp
tölurnar.
Afhending fer síðan fram Miðvikudaginn 27 Janúar
Kær kveðja fjáröflunarnefnd
12.1.2010
Prjónakvöld í Kaffitár
Starfsfólk Kaffitárs er með prjónakvöld
í kvöld kl. 20:00 Þriðjudaginn 12 Janúar í kaffistofunni í verksmiðju Kaffitárs
við Stapabraut.
Þar sem heyrst hefur af áhuga hjá Kvennasveitarkonum
um að koma saman og prjóna og spjalla saman um áhugamálin þá könnuðum við
málið og okkur er velkomið að koma og vera með þeim í Kaffitár ;)
Með von um að sjá sem flestar með prjónanna
Stjórnin
8.1.2010
Gleðilegt ár
Stjórn Kvennasveitarinnar
Dagbjargar óskar öllum félagsmönnum sínum gleðilegs nýs
árs með kærri þökk fyrir góðar stundir á liðnu ári.
Góð þáttaka var hjá
félagskonum okkar í kringum flugeldasölu Björgunarsveitarinnar
um s.l. áramót.
Við aðstoðuðum við
að selja flugelda, við sáum um að elda og þrífa og með að gefa
þeim sem voru að vinna í Björgunarsveitarhúsinu mat og drykk.
Einnig sáum við svo
um að gefa þeim sem komu að versla, hitta jólasveina og
að sjá flugeldasýningu Björgunarsveitarinnar 28
Desember s.l. heitt kakó og piparkökur og gekk þetta ljómandi vel
hjá okkur.
Minnum svo á næsta félagsfund
okkar þann 14 Janúar n.k.
Kl 20:00 í Björgunarsveitarhúsinu.
Kær kveðja
Stjórnin.
21.12.2009
Jólaganga !!!!
Vegna mikilla anna hjá Póstinum geta þeir ekki borið út jólakortin frá okkur svo nú langar okkur til að biðja ykkur kæru félagar um hjálp við útburð.
Ef hver og einn tæki að sér að ganga í í c.a klukkutíma í húsin í kring þá tækist okkur í sameiningu að koma öllum kortunum í hús fyrir jól.
Ef þið sjáið ykkur fært um að hjálpa til væri gott ef að þið mynduð mæta niður í hús kl 20:00 í dag mánudaginn 21 desember.
kær kveðja
Stjórnin
8.12.2009
Jólafundur !!!
8 Desember verður jólafundur
Björgunarsveitarinnar og bjóða þeir okkur að vera með
og borða með þeim jólamat.
Á matseðlinum verður
hangikjöt með hvítri sósu, grænum baunum og rauðkáli, uummm.....
Maturinn kostar 1000.
Kr. og er mæting kl. 19:00
Komum saman og eigum jólalega
jólastund í Björgunarsveitarhúsinu í góðum félagskap
Skráning í síma 840 2506 hjá Ölmu.
27.11.2009
Kvennasveitin gefur fingravin
Kvennasveitin Dagbjörg
vill stuðla að fækkun slysa hjá
ungum börnum.
26 og 27 nóv n.k.
mun Kvennasveitin Dagbjörg færa börnum
í Reykjanesbæ gjöf.
Börn fædd 2008 fá fingravini
að gjöf, en það er klemmuvörn sem sett er á hurðar
og kemur í veg fyrir að börn klemmi sig.
Foreldrar eða forráðmenn barnanna
fá bæklinga ,einn frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg sem inniheldur
upplýsingar um öryggisvörur fyrir heimili og annan frá brunabót
sem inniheldur upplýsingar um eldvarnir. Einnig verður þeim færður
gátlisti til að yfirfara öryggisatriði á heimilinu.
Samkvæmt slysaskrá íslands voru
á árinu 2008 skráð 1.862 heima og frítímaslys hjá börnum 0-4
ára.
Þetta eru ekki öll slys sem verða
því gagnagrunnurinn nær ekki yfir allt landið
Heima og frítímaslys eru algengustu
slysin hjá börnum og hefði mátt koma í veg fyrir mörg þeirra.
Ef við grandskoðum heimili okkar og nánasta umhverfi, getum við
örugglega flest öll fundið eitthvað sem betur má fara. Þess vegna
er mjög mikilvægt að við skoðum heimili okkar af og til.
Byrjunin gæti verið að
rifja upp þau slys eða óhöpp sem hafa orðið og hugsa
um hvort eða hvernig hefði verið hægt að koma í
veg fyrir þau.
10.11.2009
Konukvöld !!!!
Veitingastaðurinn Lemongrass stendur með okkur og býður okkur að vera með og
taka þátt í fjáröflun fyrir bátasjóð.
fimmtudagskvöldið 12. nóvember n.k. verður konukvöld í verslunarmiðstöðinni
Krossmóa 4, frá kl. 19:00 til 21:00. Þar munu fyrirtækin á staðnum bjóða
upp á ýmis tilboð ásamt fjölbreyttum kynningum og sýningum á vörum
verslananna.
En það sem skiptir okkur mestu máli er að Lemongrass ætlar að styrkja
bátasjóð Björgunarsveitarinnar og verður með sérstakt tilboð í gangi á
þessum tíma sem felur í sér að af hverjum rétti sem keyptur er rennur
helmingur í bátasjóðinn.
Þannig að ef þú kaupir þér súpu á 1000.- þá fara 500.- í bátasjóðinn og ef
þú kaupir steik á 3000.- þá rennur 1500.- í bátasjóðinn. Það eina sem við
þurfum að leggja fram og gera er að vera duglegar að auglýsa þetta meðal
allra kvenna sem við komumst í tæri við og endilega að mæta líka sem
flestar. Þarna er tækifæri á að safna góðri upphæð fyrir bátasjóðinn án þess
að þurfa að leggja fram mikla vinnu. Ég hvet ykkur allar til þess að vera
duglegar að láta þetta spyrjast út og endilega að koma ásamt vinkonum og
eiga skemmtilega kvöldstund með hressum og kátum konum.
Fjáröflunarhópurinn.
28.10.2009
Námskeið í fyrstu hjálp.
Námskeið í fyrstu
hjálp.
Björgunarveitin Suðurnes
býður öllum félögum Kvennasveitarinnar Dagbjargar á námskeið
í fyrstu hjálp um næstu helgi okkur að kostnaðarlausu, en þáttakendur
verða að vera búnir að borga árgjald Kvennasveitarinnar fyrir þetta
ár.
Þetta verður haldið
í Björgunarsveitarhúsinu.
Föstudagskvöldið 30
Okt. Kl. 20:00 - 22:00
Laugardaginn 31 Okt. kl. 09:00
- 17:00
Sunnudaginn 1 Nóv. Kl. 09:00
- 17:00.
Skráning hjá Sólbjörgu
( Sollu ) í síma 6632250.
28.10.2009
Fundur
Björgunarsveitin Suðurnes boðaði
til fundar.
Mánudagskvöldið 27 Október
s.l. boðaði Björgunarsveitin Suðurnes alla sína félaga, alla félaga
Kvennasveitarinnar Dagbjargar og alla félaga Unglingasveitarinnar Kletts
á fund í Björgunarsveitarhúsinu.
Þar var skírt frá því tapi
sem Björgunarsveitin hefur orðið fyrir með því að björgunarbátur
sveitarinnar slitnaði aftan úr Björgunarbátnum Hannes Þ. Hafsteinn
sem var með hann í togi á leið á sjóbjörgunaræfingu á Grundarfirði
í September s.l. Litlar líkur eru taldar á að báturinn muni
finnast.
Fór stjórn Björgunarsveitarinnar
fram á að allar þessar sveitir sneru baki saman og hjálpuðust
að við að safna fyrir nýjum björgunarbát. Þetta er mikið verk
þar sem nýr bátur kostar lágmark 15.000.000. kr. og féð sem fæst
úr tryggingum er langt í frá nægjanleg fyrir öðrum bát. Þessar
fréttir þjöppuðu sveitunum enn meira saman og mikil samstaða náðist
á fundinum og voru allir tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að
aðstoða Björgunarsveitina við að ná markmiði sínu sem fyrst.
Fyrsta sameiginlega verkefnið
í þessari söfnun er salan á Neyðarkallinu sem verður helgina
6-8 Nóvember n.k. og var samþykkt af öllum viðstöddum að það
fé sem safnast fyrir söluna skuli allt renna í sérstakan Björgunarbátasjóð
sem verið er að stofna. 28.10.2009
Ný Heimasíða
Heimasíða Kvennasveitarinnar Dagbjargar
Stjórn Kvennasveitarinnar
Dagbjargar fagnar því að búið sé að
opna sérstaka síðu fyrir málefni Kvennasveitarinnar og vonar að
hún verði félögum hennar að góðum notum og gagni við
að fylgjast með því sem er að gerast hjá
Kvennasveitinni
Stjórn þakkar Sigríði Þóru
Gabríelsdóttur ( Siggu Tótu ) kærlega fyrir að taka
að sér að sjá um þetta verkefni. Fara á upphafssíðu