Fimmtudagskvöldið 9 Febrúar verður haldið námskeið fyrir Kvennasveitarkonur um hvernig við getum sem best aðstoðað og hvatt heldri borgara bæjarinns til að vinna að slysavörnum á heimilum sínum og útbúa þau þannig að sem minnst slysahætta sé þar. Því miður er slysatíðni aldraðra á heimilum sínum enn alltof há og því er mikilvægt að þau fái sem besta og mesta fræðslu um þetta efni svo heimilin geti verið öruggur staður fyrir aldraða sem gerir þeim kleift að vera heima sem lengst.
Við munum fá hana Margréti frá öldrunardeild HSS til að koma og segja okkur frá þessu málefni og hvernig við getum stutt við þetta starf í Reykjanesbæ. Einnig ætlar hún Dagbjört Kristinsdóttir starfsmaður Slysavarnafélagisns Landsbjargar á slysavarnasviði að koma og ræða við okkur um þessi mál og gefa okkur góð ráð og ábendingar um hvernig við getum undirbúið okkur sem best til að geta komið að sem mestu gagni þegar við förum í heimsóknir til aldraðra.
Svo að nú er bara að taka Fimmtudagskvöldið 9 Febrúar frá og koma í Kaffitár við Stapabraut 7 kl 20:00 og fræðast um hvernig við getum sem best stutt við þau verkefni sem við erum að vinna að.